Upplýsingar
VOSS eldavél með spanhelluborði
sem er með sleðatökkum og samtengjanlegum hellum. Ofninn er með
sjálfhreinsibúnaði, góðu innra rými og mjúklokun.
Spanhelluborð
Eru
mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða
pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta
bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.
Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með
fjórum hellum og hægt er að sameina hellurnar vinstra megin í eina sé þörf á
stærra eldunnarsvæði.
Stjórnborð
Með sleðatökkum sem eru auðveldir og þægilegir í notkun. Þú
einfaldlega stillir hitastigið með því að renna fingrinum eftir sleðatakkanum.
Tímastillir
Fyrir
hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími
er liðinn.
PowerBoost
Háhitaspan er á öllum
hellum sem er tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.
OptiHeat
Þrjár
forstilltar hitastillingar, til að sjóða, halda heitu eða til að velgja.
Stop&Og
Takkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum. Heldur
hita á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri stillingu.
Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt
er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottunum eða
pönnunum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur.
SteamBake
Kerfið er eingöngu fyrir brauðbakstur. Með því að nota „SteamBake“ þá
verður skorpan á brauðinu stökk og brauðið mjúkt að innan.
Sjálfhreinsikerfi
Þú velur hreinsunnarkerfið og tímalengdina og ofninn strax að hita sig upp
500°C og brennir öll óhreinindi að innan. Eftir á er hægt að strjúka öskuna
auðveldlega í burtu.
Kjöthitamælir
Innbyggður kjöthitamælir hjálpar til við að ná sem bestum árangri við
eldamennskuna.
Orkunotkun
Þessi eldavél er í orkuflokki A+ sem þýðir orkusparnað fyrir þig og
umhverfið.
Kerfin
Þú getur valið um helstu eldunarkerfin eins og blástur, undir- og yfirhita,
grill, SteamBake ásamt fleirum.
Fylgihlutir
Kjöthitamælir, 1 djúp skúffa, 1 grind, 2 grunnar skúffur og 1
útdráttarbraut.
Og svo hitt
Rafmagnskapall og kló fylgja ekki.
Athugið! Með flestum eldavélum fylgir ekki
kló þar sem rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum
fylgir engin snúra og þarf því að hafa samband við fagaðila.
Eiginleikar
Vörumerki | VOSS |
---|---|
Orkumerking | 2019A+ |