Upplýsingar
AEG veggofn með helstu eldunarkerfum,
sjálfhreinsun og kjöthitamælir. Auðveldur í notkun og með góðu innra rými. Hann
er með My AEG Kitchen sem gerir eldhúsupplifun þína enn betri, sparar tíma og
eykur þægindin. Glæsilegur ofn sem gefur þér tækifæri til að vera skapandi í
eldhúsinu þínu.
Gott
pláss
Veggofninn
er með góðu innra rými eða 71 lítrar og hentar því vel fyrir stór heimili. Þú
getur eldað mikið í einu og hefur nóg pláss fyrir jólakalkúninn.
My AEG Kitchen App
Með því getur þú stjórnað ofninum með símanum þínum. Hægt er að
sækja appið annað hvort í Play eða App Store. Eins er hægt að skanna QR-kóða
sem er á miða inni í ofninum.
Sjálfhreinsikerfi
Þú velur hreinsunnarkerfið og tímalengdina og ofninn byrjar
strax að hita sig upp í 500°C og brennir öll óhreinindi að innan. Eftir á er
hægt að strjúka öskuna auðveldlega í burtu.
Kjöthitamælir
Innbyggður kjöthitamælir hjálpar til við að ná sem bestum
árangri við eldamennskuna.
Orkunotkun
Þessi veggofn er í orkuflokki A+ sem er þýðir orkusparnað fyrir þig og
umhverfið.
Kerfin
Ofninn er með helstu kerfum eins og blástur, undir og yfirhita, pizza
stilling (blástur með undirhita), einfalt grill, grill með blæstri og
gufubakstur.
Gufubakstur
Er kerfi sem er fyrst og fremst ætlað fyrir brauðbakstur. Með þessu kerfi
verður skorpan á brauðinu stökk og brauðið mjúkt.
Stjórnun
Ofninum er stjórnað með snúningstökkum sem eru auðveldir og
þægilegir í notkun.
Hurðin
Er með mjúklokun þannig að hún skellist ekki sem verndar bæði hurðina og
ofninn. Auðvelt er að taka ofnhurðina af t.d. þegar þarf að þrífa hana. Hurðin
er með IsoFront Plus framhlið og hitnar því ekki.
Barnalæsing
Hægt er að læsa ofnhurðinni þannig að litlir fingur geti ekki opnað hana.
Ljósið
Góð lýsing er í ofninum og kveiknar það sjálfkrafa um leið og hann er
opnaður.
Fylgihlutir
Kjöthitamælir,
1 djúp skúffa, 2 grunnar skúffur og 1 grind.
Og svo hitt
Ef opna þarf ofninn á meðan verið er að nota blástur þá hægir hann á
blæstrinum á meðan. Sjálfvirk slökkvun ef ofn gleymist í gangi. Hraðhitun sem
er snilld þegar mikið liggur á.
Eiginleikar
Þyngd pakkningar | 36,5 kg |
---|---|
Ummál pakkningar | 56,7 × 59,5 × 59,4 cm |